Mánuður: febrúar 2014

Kvennakvöld á Flötinni á miðvikudögum klukkan 20:00

Kvennakvöld í inniaðstöðunni á Flötinni á miðvikudögum klukkan 20:00. Pútt- og vippæfingar, slegið net og svo er auðvitað hægt að skrá sig í golfhermirinn. Miðvikudaginn 12. febrúar verður lögð áhersla á að æfa pútt og vipp, Arnar Geir Hjartarson verður með leiðsögn og æfingaprógram fyrir þær sem vilja. Vonumst til að sjá sem flestar. Æfingin skapar meistarann!

Categories: Óflokkað

Dagskrá vikunnar á Flötinni

Dagskáin á Flötinni þessa vikuna verður svona:

Þriðjudaginn 4.febrúar kl.17:00-19:00 – Opið hús fyrir alla að koma að pútta, vippa og slá í net.

Fimmtudagur 6.febrúar kl.17:30-18:30 – Golfæfing 11 ára og yngri

Fimmtudagur 6.febrúar kl.20:00 – Púttmót

Sunnudagur 9.febrúar kl.17:00-19:00 – Golfæfing 12 ára og eldri.

Golfhermirinn er síðan opinn alla daga að venju – upplýsingar um tímapantanir er að finna hér á síðunni.

Úrslit í síðustu púttmótum voru þessi:

23.janúar

1. Hjörtur Geirmundsson 53 högg

2. Arnar Geir Hjartarson 55 högg

3. Ingvi Þór Óskarsson 57 högg

 

30.janúar

1. Ingvi Þór Óskarsson 57 högg

2. Arnar Geir Hjartarson 58 högg

3. Sigríður Elín Þórðardóttir 62 högg.

 

Categories: Óflokkað