Mánuður: mars 2014

Golfmót í mars!

SPARISJÓÐSGOLFMÓT
Í golfherminum

22. og 23. mars 2014
Leikið verður á Bay Hill v2 vellinum

 

 

Forsendur auglýstar í herminum.

Leikmenn:    Konur og öldungar (70+) leika af rauðum teigum

Karlar leika af bláum teigum

Keppnisfyrirkomulag: Höggleikur með og án forgjafar.

Tvenn verðlaun veitt í hvorum flokki.  1. verðlaun, gjafakort kr. 7.500.-   2. verðlaun, gjafakort kr. 5.000.-

Styrktaraðili mótsins er Sparisjóðurinn.

 

Við útreikning á forgjöf leikmanns er miðað við grunnforgjöf hans og hækkar aukastafur ,5 og hærra  leikforgjöf upp í næstu heilu tölu en ,4 og lægra lækkar leikforgjöf niður í næstu heilu tölu.

Gert er ráð fyrir að þriggja manna holl leiki þennan völl á innan við þremur tímum.

Keppnisgjald: Kr. 1.000.- (ekkert gat á gatakort)

Skráning í mótið fer fram hjá Guðmundi Ragnarssyni  í síma 893-5601 og geta keppendur valið leiktíma miðað við það sem hér kemur á eftir:

Laugardaginn 22. mars geta 5 holl spilað, kl. 9, 12, 15, 18 og 21.

Sunnudaginn 23. mars geta 3 holl spilað, kl. 8, 11 og 14.

Skráningu lýkur kl. 12:00 föstudaginn 21. mars n.k.

 

Óski fleiri eftir að taka þátt í mótinu en rými er fyrir samkvæmt ofangreindu áskilur golfhermisstjórnin sér rétt til að bæta við rástímum föstudaginn 21. mars. n.k.

Keppendur skulu sjálfir færa skorkort, skráð af skjánum, og fá þeir það í hendur áður en leikur hefst. Að leik loknum kvitta leikmenn undir.

Komi það fyrir á meðan að leik stendur að tölvan frjósi eða geri annan óskunda er hægt að byrja upp á nýtt, fara í „new hole“ og hefja aftur leik á þeirri holu sem óhappið átti sér stað á. Þá kemur sér vel að hafa handfært skorið á skorkort þar sem skorið í tölvunni er væntanlega glatað.

Categories: Óflokkað

Hella 2014

Þá styttist í árlegt golfmót á Hellu en það verður 1. maí nk. og áhugasamir hafi samband við Guðmund Ragnarsson í síma 893 5601 eða gr@vegagerdin.is sem fyrst.

Categories: Óflokkað

Dagskráin á Flötinni 10. – 16.mars

Dagskáin á Flötinni þessa vikuna verður svona:

Þriðjudagur 11.mars kl.17:00-19:00 – Opið hús fyrir alla að koma að pútta, vippa og slá í net.

Miðvikudagur 12.mars kl.20.00 Kvennakvöld. Pútt og vippæfingar.

Fimmtudagur 13.mars kl.17:30-18:30 – Golfæfing 11 ára og yngri

Fimmtudagur 13.mars kl.20:00 – Púttmót

Sunnudagur 16.mars kl.17:00-19:00 – Golfæfing 12 ára og eldri.

Golfhermirinn er síðan opinn alla daga að venju – upplýsingar um tímapantanir er að finna hér á síðunni.

Úrslit í síðasta púttmóti 27.febrúar:

1.Hjörtur Geirmundsson 60 högg

2. Ásgeir Einarsson 63 högg

3. Ingvi Þór Óskarsson 64 högg

Categories: Óflokkað