Mánuður: júní 2015

Norðvesturþrenna I – Skagaströnd 20. júní

Ágætu golfarar – minnum á fyrsta mót Norðvesturþrennunnar á Skagaströnd nk. laugardag, 20. júní. Sjá nánar á golf.is

Úr reglugerð um Norðvesturþrennuna

  1. Keppt er í þremur flokkum: Opinn flokkur með forgjöf, karlaflokkur án forgjafar, kvennaflokkur án forgjafar. Ekki er gefin hærri leikforgjöf en 36.
  2. Keppendur fá 1 punkt fyrir skolla, 2 fyrir par o.s.frv.
  3. Lagðir eru saman punktar keppenda úr hverju móti. Punktar á „útivöllum“ gilda þó tvöfalt. Verði keppendur jafnir gildir röð á síðasta mótinu.
  4. Verðlaun fyrir flesta punkta í hverjum flokki er gjafabréf frá golfverslun að upphæð 10.000 kr.“

Categories: Óflokkað

Golfkennsla – nýliðanámskeið

Um margt að hugsa
Um margt að hugsa

Fyrsta nýliðanámskeið sumarsins verður haldið næstu þrjá þriðjudaga, 23.júní, 30.júní og 7.júlí kl.18-20.

Skráning er í golfskála,hjá golfkennara í síma 6181700 eða hjá Dagbjörtu í síma 8686917.

Verð fyrir námskeiðið er kr. 12.500,-

 Þá er einnig hægt að panta einkatíma hjá Jóni Þorsteini Hjartarsyni golfkennara í síma 6181700.

 Við viljum hvetja alla til að kíkja á Hlíðarenda í golf – golf er gaman !

 

Categories: Óflokkað