Reglugerð um Ólafshúsmótaröð 2011

Ekki skal byrja leik fyrr en kl. 14:00 og eigi síðar en kl. 19:00 til og með 27 júlí en eftir það skal ekki ræsa út eftir kl. 17:30

Við sérstakar aðstæður getur mótanefnd veit undanþágur frá þessum tímamörkum.

Skylt er að greiða mótsgjald,  1.200,- kr. áður en leikur hefst. Ef greitt er fyrir 10 mót í einu fæst afsláttur sem nemur 200 kr. á hvert mót. Gestir greiða gjald sem nemur 18 holu gjaldi skv. gjaldskrá.  Ef gestur er í fylgd GSS félaga greiðir hann gjald sem nemur 9 holu gjaldi skv. gjaldskrá.

Félagar í GSS eiga  að skrá sig á netinu http://golf.is/pages/forsida1/motaskra/ á rástíma. Hægt verður að skrá sig í skála inn á rástíma í gengum www.golf.is Rástímar verða settir upp á tímabilinu 15:00 til  19:00* og er ætlast til þess að ekki verði fleiri en 3 í ráshóp.

Verðlaun verða afhent eigi síðar en kl. 10:00 eða við mótslok

Keppnisfyrirkomulag mótaraðarinnar er punktakeppni með og án forgjafar.*

Í hverju móti  eru  veit verðlaun fyrir fyrsta sæti í hvorum flokki fyrir sig,  3.000 króna gjafabréf frá Ólafshúsi.

Bestum  samanlögðum árangri   í sjö af tíu mótum sumarsins, í hvorum flokki fyrir sig,  fylgir sæmdarheitið “Golfkappi” Golfklúbbs Sauðárkróks árið 2011 og 10.000 króna gjafabréf frá Ólafshúsi. Verði tveir eða fleiri jafnir eftir að sjö bestu skor viðkomandi hafa verið lögð saman, skal sá sem hefur fleiri sigra á bakvið sig hljóta nafnbótina Golfkappi. Ef en er jafnt þá skal hærri meðal árangur í öllum mótum Ólafshúss mótaraðarinnar gilda.

Einungis þeir sem eru með virka* forgjöf eiga möguleika til að vinna til verðlauna á hverju móti fyrir sig.  Til að geta unnið til sæmdarheitsins Golfkappi þarf að taka þátt í amk. 7 mótum með virkri forgjöf.

Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga á reglugerð þessari og auglýsir þær á viðeigandi hátt í Skála og á netinu.

Mótanefnd GSS.

 

*Séu leikmenn jafnir í punktakeppni án forgjafar, sigrar sá aðili sem fer á fæstum skráðum höggum.  Ef enn er jafnt, þá gildir skor á seinni 9 og ef enn er jafnt þá gildi siðustu 6 og síðan 3. Ef enn er jafnt þá verði sá sem er með fleiri fugla og/eða pör og/eða skolla dæmdur sigurvegar. Ef allt þetta bregst, þá verði gjafabréfinu úthlutað til góðra málefna, eftir ákvörðun Formanns mótanefndar.

*Virk forgjöf: hafa skilað inn 4 gildum skorkortum eða hafa virka forgjöf á golf.is