Kennsla

Thomas Olsen aðalþjálfari GSS 2012

Thomas Olsen mun verða aðalþjálfari GSS sumarið 2012. Thomas er Dani og er fæddur árið 1974. Hann stundaði nám í golfkennaraskóla á árunum 1998 – 2000 og útskrifaðist þá með PGA gráðu. Hann hefur starfað við golfþjálfun og golfkennslu frá árinu 1998  aðallega í Danmörku en einnig á árunum 2005-2009 í Thailandi. Hann hefur einnig haft umsjón með golfviðburðum, rekið golfverslanir ofl hjá þeim klúbbum sem hann hefur starfað hjá.

 
Thomas kemur til okkar um mánaðarmótin maí/júní og verður hjá okkur við kennslu til ágústloka.  Hann mun hafa umsjón með barna-og unglingastarfinu okkar ásamt því að sinna almennri golfkennslu fullorðinna. Thomas hefur bestu meðmæli og bindum við miklar vonir við áframhaldandi framfarir og eflingu golfiðkunar í Skagafirði.