Kennsla

Golfkennari GSS er Atli Freyr Rafnsson en hann útskrifaðist úr PGA Golfkennaraskólanum árið 2025, en hefur sinnt kennslu á öllum aldri til fjölda ára. Ýmsir kennarar hafa komið honum til aðstoðar en árið 2026 eru það Tómas Bjarki Guðmundsson og Una Karen Guðmundsdóttir sem hafa helst verið honum til aðstoðar. 

Nýliðanámskeið eru haldin á hverju sumri og njóta mikilla vinsælda og auðvelda nýliðum að fá grunn að golfsveiflunni og að komast inn í starfið. Nýliðanámskeið er innifalið í nýliðagjaldi í golfklúbbinn. 

Atli Freyr tekur líka að sér einkakennslu í golfi fyrir bæði byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Hægt er að bóka tíma hjá honum í síma 857-6636.

Atli ásamt efnilegum ungum kylfingum

Uppfært í júní 2026