Barna og unglingastarf

Golfklúbbur Skagafjarðar er stolt af því metnaðarfulla barna- og unglingastarfi sem fram fer hjá klúbbnum, þar sem börn geta mætt í golfkennslu á sínum forsendum, hvort sem þau stefna á að verða afreksmenn eða læra að hafa gaman af því að spila golf, eða hvort tveggja.

Hjá GSS er fjöldi tækifæra fyrir börn að æfa golfsveifluna undir handleiðslu PGA golfkennara, og taka þátt í barna- og unglingamótum. Þar má helst nefna að klúbburinn tekur þátt í sveitakeppnum í barna- og unglingaflokki, og Norðurlandsmótaröðinni, þar sem golfklúbbar á norðurlandi halda barna- og unglingamót reglulega yfir sumarið, þar sem hver klúbbur heldur eitt mót á sínum heimavelli og býður öðrum börnum að mæta og hafa gaman af. 

Atli Freyr Rafnsson er þjálfari klúbbsins, en honum til aðstoðar árið 2026 eru Una Karen Guðmundsdóttir og Tómas Bjarki Guðmundsson. 

Barna- og unglinganefnd er með eigin facebook síðu til að halda utan um samskipti við forráðamenn.  Vinsamlega hafið samband við formann barna- og unglinganefndar til að fá nánari upplýsingar.