Flokkur: Félagsstarf

Golfklúbbur Skagafjarðar 50 ára (grein í Feyki 29.1.2020)

Á Hlíðarendavelli (Mynd: Hjalti Árnason)

Golfklúbbur Skagafjarðar hefur starfað frá árinu 1970 og verður því 50 ára á árinu 2020. GSS gegnir mikilvægu hlutverki í Sveitarfélaginu Skagafirði.  Í fyrsta lagi fer fram öflugt barna- og unglingastarf í klúbbnum, í öðru lagi hentar golf sem áhugamál, félagsskapur og heilsubót fyrir fólk á öllum aldri og síðast en ekki síst er golf hluti af ferðamennsku og golfarar heimsækja Skagafjörð gagngert til þess að spila golf.  Um mitt sumar 2019 voru 167 félagar skráðir í GSS og hafði fjölgað um 13 frá árinu áður. 

Barna- og unglingastarf
Barna og unglingastarf er blómlegt og fer vaxandi.  Sumaræfingar eru á virkum dögum júní – ágúst og á veturnar eru inniæfingar.  Þjálfarar okkar eru reyndir golfarar í GSS og einnig fáum við PGA kennara í heimsókn.  Langtímamarkmið í þjálfun barna og unglinga er að skapa áhuga á golfíþróttinni og íþróttum almennt, sem endist ævilangt.  Mikil áhersla er lögð á gott félagsstarf og í tilefni afmælisárs verður farið í æfingaferð til Danmerkur í sumar.

Nýliðun og mótahald
GSS er góður félagsskapur sem er öllum opinn.  Árlega eru haldin nýliðanámskeið á vorin. GSS hefur það að markmiði að gera inngöngu í GSS áhugaverða, með kynningu, námskeiðum og nýliðamótum.  Nýliðanefndin og þjálfarar á nýliðanámskeiði hjálpa nýjum félögum við skrefið frá því að vera byrjandi yfir í það að spila reglulega á Hlíðarendavelli. 
Mótahald skipar stóran sess í starfi klúbbsins. Árlega eru haldin a.m.k. 6 opin mót og yfir 20 innanfélagsmót.  Auk þess starfar GSS með UMFÍ/UMSS að undirbúningi og framkvæmd landsmóta. 

Völlur og starfsmenn
Hlíðarendavöllur fær einróma lof þeirra sem hann sækja. Völlurinn að Hlíðarenda er á um 29 hektara svæði, sem jafngildir yfir 60 knattspyrnuvöllum.  Hann er því með stærri íþróttamannvirkjum Skagafjarðar að flatarmáli.  Staðsetning vallarins er góð, í göngufæri frá íbúðabyggð og tjaldstæðum bæjarins sem hefur marga augljósa kosti.  Það krefst vinnu að viðhalda vellinum og bæta.  Vallarnefnd hefur lagt fram metnaðarfulla áætlun um endurbætur á vellinum árin 2020 – 2024.  Áætlunina er að finna í handbók klúbbsins á heimasíðu GSS, www.gss.is. Vallarstjórinn hefur ásamt sumarstarfsmönnum unnið afrek við að halda vellinum í góðu ástandi og tækjum gangandi. Endurbætur á vellinum krefjast mikillar vinnu.  Fjórir sumarstarfsmenn starfa á vellinum og einn starfsmaður í golfskálanum.  Tveir starfsmanna vallarsins sinna einnig kennslu barna og unglinga. Starfsmenn vallarins sinna einnig slætti á íþróttasvæði Sauðárkróks og á opnum svæðum á Sauðárkróki.

Golfskálinn á Hlíðarenda
Félagsmenn nýta golfskálann mikið í tengslum við blómlegt mótahald og samkomur tengdar golfinu. Auk þess veitir skálinn börnum og unglingum afdrep þegar þau sækja skipulagða æfingar hjá GSS en algengt er að börn komi með nesti að heiman fyrir matar- og kaffitíma.  Yfir sumartímann er starfsmaður alla daga í skálanum sem gefur gestum upplýsingar um völlinn og Skagafjörð og selur vallargjöld og léttar veitingar.  Golfklúbburinn nýtir skálann mest yfir sumarmánuðina, en hann stendur að mestu ónotaður yfir vetrarmánuðina.  Sum sveitarfélög hafa farið þá leið að byggja fjölnota skála sem nýtist fyrir ýmsa starfsemi allt árið, m.a. klúbba sem ekki hafa eigin aðstöðu.     

Inniæfingar á veturnar
Í inniaðstöðu í Borgarflöt 2 er golfhermir, púttvöllur og aðstaða til að slá í net. Þar eru inniæfingar fyrir börn og unglina á veturnar.  Aðrir félagsmenn nýta inniaðstöðuna einnig til æfinga og mótahalds á veturnar.  Í norðurhluta hússins er tækjageymsla og aðstaða til viðhalds á tækjum. Goflhermirinn er nokkuð gamaldags og kominn tími á endurnýjun til að börn og unglingar fái sem besta kennslu.  

50 ára afmæli
GSS heldur upp á 50 ára afmælið með ýmsum hætti.  Afmælisrit verður gefið út og dreift til allra heimila og fyrirtækja í Skagafirði.  Þar verða greinar og viðtöl og birtur hluti af sögu klúbbsins, en saga GSS er hluti af sögu Skagafjarðar. Fleiri viðburðir verða á árinu svo sem afmælismót og afmælishóf.  Nokkrir klúbbfélagar hafa tekið sig saman og stefna á golfferð til Póllands í haust.  Átak verður gert í því að ná til nýbúa og stofnuð verður púttdeild sem hentar vel fyrir 70+ aldurinn. 
Fyrirtækjum og stofnunum stendur til boða að vera með starfsmannaviðburði á Hlíðarendasvæðinu í samstarfi við golfklúbbinn í sumar.  Þar kemur ýmislegt til greina, t.d. vanur/óvanur mót, síðdegisgolfnámskeið, þrautabraut og fleira. 

Framtíðin
Framtíðin er björt.  Golf nýtur mikilla vinsælda á Íslandi með næstflesta iðkendur samkvæmt tölum frá ÍSÍ.  Golfið hefur sannað gildi sitt sem heilsubót og fjölskylduíþrótt sem hentar fólki á öllum aldri.  Einnig eru mikil tækifæri í golfferðamennsku fyrir GSS og Skagafjörð.
 Kristján Bjarni Halldórsson, formaður GSS

Categories: Félagsstarf

Tilnefningar GSS til íþróttamanns og liðs Skagafjarðar 2019

Golfklúbbur Skagafjarðar tilnefndi Arnar Geir Hjartarson sem íþróttamann ársins og kvennalið GSS sem lið ársins 2019. Valið er í höndum 10 manna nefndar UMSS. Valið verður kynnt í athöfninni „Íþróttamaður ársins 2019“ sem fram fer í Ljósheimum föstudaginn 27. desember kl 20:00. Jafnframt munu ungir efnilegir íþróttamenn innan UMSS fá hvatningarverðlaun. Félagar GSS eru hvattir til að mæta á athöfnina sem er öllum opin. 

Arnar Geir Hjartarson

Arnar Geir varði klúbbmeistaratitil sinn á árlegu fjögurra daga Meistaramóti golfkúbbsins og er án efa sterkasti kylfingur Skagafjarðar um þessar mundir.  Hann hafði mikla yfirburði á innanfélagsmóti GSS, sigraði þar með og án forgjafar.  Arnar Geir setti einnig vallarmet á Hlíðarendavelli í sumar þegar hann spilaði völlinn á 67 höggum eða 5 höggum undir pari vallarins.  Vallarmetið setti hann á miðvikudagsmóti Kaffi Króks þann 7. ágúst.  Forgjöfin lækkaði úr 2,2 í 0,6 á árinu sem staðfestir framfarir í kjölfar þrotlausra æfinga.  Arnar Geir var í karlasveit GSS og sigraði allar sínar viðureignir á íslandsmóti golfklúbba 3. deild í Grindavík.
Arnar Geir er á sínu þriðja ári í háskóla við Missouri Valley College. Þar komst hann inn á skólastyrk vegna golfiðkunar og splar með golfliði skólans.  Í vor sigraði lið hans deildarkeppni háskóla í miðríkjum Bandaríkjanna og komst liðið þar með á lokamót NAIA háskólamótaraðarinnar í Bandaríkjunum.  Lokamótið var haldið í Arizona og og mættu 30 lið til leiks.  Liðið endaði þar í 13. sæti á landsvísu. Þetta var besti árangur skólans sem hafði fram að þessu aldrei náð að komast í lokakeppni.

Þetta var í fyrsta skipti sem lið frá skólanum vinnur deildarmeistaratitil í golfi.  Arnar Geir endaði golfárið í Bandaríkjunum, eftir gott sumar í Skagafirði, með því að verða holukeppnimeistari golfliðs háskólans.  Þar að auki var hann í haust kosinn fyrirliði skólaliðsins og spilaði í öllum keppnum haustsins með liðinu.
Arnar Geir er ungum kylfingum fyrirmynd utan vallar sem innan.

Kvennasveit GSS

Kvennasveit GSS hélt sæti sínu í efstu deild golfklúbba á árinu.  Leikið var á Íslandsmóti golfklúbba í 1.deild í júlí og endaði sveit GSS í 7. sæti. Leikið var á tveimur völlum, hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Golfklúbbnum Oddi. Allar sterkustu sveitir landsins tóku þátt, en tvær deildir eru í íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki. Næsta ár verður því þriðja árið í röð sem GSS leikur í 1.deild kvenna.  Sveitina skipuðu:

Anna Karen Hjartardóttir, Árný Lilja Árnadóttir, Dagbjört Hermundsdóttir, Hildur Heba Einarsdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir, Sólborg Hermundsdóttir, Telma Ösp Einarsdóttir

Liðsstjóri: Árný Lilja Árnadóttir