Mótanefnd GSS heldur utan um metnaðarfullt mótahald á sumrin á Sauðárkróki. Fjöldi móta er í boði sem henta fyrir kylfinga af öllum kynjum af öllum aldri. Mót GSS skiptast í innanfélagsmót, opin mót og mót barna og unglinga.
Mótaskrá sumarið 2026:
Mót og mótaraðir eru nánar útskýrðar í texta fyrir neðan

Innanfélagsmót
Innanfélagsmót eru haldin fyrir félagsmenn. Rétt til þátttöku hafa félagar í GSS.
Háforgjafarmót:
Hard Wok háforgjafarmótin eru 9 holu mót og eru ætluð þeim sem eru með 30 eða hærra í forgjöf (vallarforgjöf). Þeir sem eru með lægri forgjöf er velkomið að taka þátt en þeir geta ekki unnið til verðlauna. Mótin henta þeim vel sem eru að stíga sín fyrstu skref í golfíþróttinni, óháð aldri.
Miðvikudagsmótaröðin (Esja):
Mótaröðin samanstendur af 10 stökum mótum sem haldin eru á tímabilinu 1. júní til 1. september. Mótin skulu að jafnaði vera á miðvikudögum. Ef ekki tekst að halda 10 mót á tímabilinu s.s. vegna veðurs eða samkomutakmarkana má lengja tímabil um eina viku eða fækka mótum í röðinni og þ.a.l. þeim mótum sem telja til stiga.
Í hverju stöku móti er keppt í þremur flokkum: punktakeppni með forgjöf konur, punktakeppni með forgjöf karla, opinn flokkur punktakeppni án forgjafar. Hámarksforgjöf er 36 í karla og kvenna flokki. Ef færri en 3 keppendur eru af öðru hvoru kyni eru karla og kvennaflokkar sameinaðir.
Veitt eru verðlaun fyrir sigurvegara í öllum flokkum í hverju móti raðarinnar. Ef tveir eða fleiri keppendur eru jafnir í efsta sæti í punktakeppni með forgjöf gildir röð keppenda samkvæmt niðurstöðu reikniforrits GSÍ sem notað er við úrvinnslu punktamóta með forgjöf. Aðeins er hægt að vinna í einum flokk í hverju móti.
Veitt eru verðlaun fyrir besta árangur samanlagt í sömu flokkum og á stökum mótum raðarinnar með forgjöf. Talin eru 6 bestu mót keppanda. Veitt eru ein verðlaun fyrir bestan samanlagðan árangur í punktaleik án forgjafar eftir röðina óháð kyni.
Reglur um mót:
Miðvikudagsmótin, Esju Gæðafæði mótaröðin.
Meistaramót
Meistaramót er haldið á hverju ári, en keppnisflokkar geta breyst frá ári til árs. Árið 2026 er keppt í 8 flokkum, þar sem markmiðið er að allir geti fundið sér flokk við hæfi. Keppt er í fullorðinsflokki frá miðvikudegi til laugardags.
Meistaraflokkar og 1. flokkur karla og kvenna leika höggleik án forgjafar, 4×18 holur, miðvikudag til laugardags.
2. flokkur karla og kvenna leika höggleik án forgjafar, 3×18 holur, á tímabilinu þriðjudag til laugardag, dagar auglýstir nánar síðar.
Öldungar (bæði kyn, 60+) leika höggleik með forgjöf, 3×9 holur, á tímabilinu þriðjudag til laugardag, dagar auglýstir nánar síðar.
Í háforgjafaflokki (bæði kyn) er punktakeppni með forgjöf, 2×9 holur, á tímabilinu þriðjudag til laugardag, dagar auglýstir nánar síðar.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina keppnisflokka ef þörf er á.
Mótsstjórn: mótanefnd GSS
Opin mót
Opið mót er golfkeppni skipulögð og haldin af GSÍ og/eða aðildarklúbbum þess, þar sem fleiri en einum golfklúbbi, eða félögum úr fleiri en einum golfklúbbi, er heimil þátttaka. GSS stendur fyrir ýmsum opnum mótum í samstarfi við fyrirtæki. Mótin eru yfirleitt haldin á laugardögum. Um opin mót gilda móta- og keppendareglur GSÍ sem eru á heimasíðu GSÍ.
Skráning í mótin fer fram á Golfbox og þar eru nánari upplýsingar um mótin.
Mót fyrir börn og unglinga
Mót fyrir börn og unglinga eru annars vegar innanfélagsmót og hins vegar opin mót sem haldin eru á vegum GSÍ eða í samstarfi golfklúbbanna á Norðurlandi, Þessi mót eru sérstaklega ætluð fyrir börn og unglinga. Ungmenni í GSS hafa jafnframt rétt til þátttöku í mótum á vegum GSS, eftir því sem reglur mótanna kveða á um. Barna- og unglinganefnd er með Facebook hóp þar sem finna má upplýsingar um mótin. Upplýsingar um opin mót eru einnig á heimasíðu GSÍ (golfbox).
Mót sumarið 2026
Innanfélagsmót
Þriðjudagsmótaröð – HardWok (10 mót)
Miðvikudagsmótaröð – Esja Gæðafæði (10 mót)
Meistaramót GSS, 29. júní -4. júlí
Meistaramót GSS í holukeppni, Byrjar 8. júní
Opin mót
KS Mótið Texas Scramble – 13. júní
Hlíðarkaupsmótið – 20.júní
FISK Mótið – 17. júlí
Kvennamót GSS – 25. júlí
Steinullarmótið – 1. ágúst
Advania Mótið (Betri bolti) – 9. ágúst
Fasteignasölu Mótið Texas Scramble – 22. ágúst
Upplýsingar um mótanefnd 2026:
Halldóra Andrésdóttir Cuyler, formaður – 849-5689 – dora.cuyler@gmail.com
Anna Karen Hjartardóttir
Arnar Skúli Atlason
Kristinn Brynjólfsson
Sigrún Ólafsdóttir
Sunna Björk Atladóttir

