Fyrsta mót sumarsins í Norðurlandsmótaröð barna og unglinga fór fram sunnudaginn 14. júní. Þátttaka var góð og mættu krakkar frá Skagafirði, Akureyri og Dalvík. Spilað var í nokkrum flokkum í bæði 9 og 18 holu leik og kepptu 59 börn og unglingar, allt frá 5 ára upp í 18. Stærsti flokkurinn var byrjendaflokkur með 23 keppendur. Skagfirsku kylfingarnir stóðu sig með prýði og stefnir í gott sumar. Myndir frá mótinu eru inn á Facebook hópnum Golfmyndir GSS.
Category: Börn og unglingar
Þórður Rafn Gissurarson atvinnukylfingur verður með námskeið fyrir byrjendur og lengra komna helgina 20. – 21. júní.
Byrjendanámskeið: hentar vel byrjendum og þeim sem vilja
rifja upp. Farið í undirstöðuatriði: sveiflu, pútt, vipp, járnahögg og
teighögg. Laugardag og sunnudag kl 13 – 15. Hámark 6 manns. Verð 15
þúsund. Skráning: golfkennslatrg@gmail.com
Æfðu eins og atvinnukylfingur: Fyrir þá sem vilja bæta sig og
æfa markvisst. Teighögg, járn og stutta spilið. Meðal annars
frammistöðuæfingar sem munu skila sér í betra skori. Laugardag og sunnudag kl
10:00 – 12:30. Hámark 6 manns. Verð 15 þúsund. Skráning
golfkennslatrg@gmail.com
Hópkennsla/einkakennsla: 55 mínútur fyrir 1-4 manns. Hámark 4 manns. Fös kl 16 – 20, Lau kl 15 – 20, Sun kl 15 og 16. Fast verð fyrir kennslustund óháð fjölda er 10 þúsund. Skráning golfkennslatrg@gmail.com

Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í dag næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Breytingarnar taka gildi 4. maí.
Hvað skipulagt íþróttastarf barna varðar þá verður það heimilt utandyra ef ekki eru fleiri en 50 saman í hóp. Þá skal vera að minnsta kosti tveggja metra fjarlægð á milli þeirra, eftir því sem unnt er, sérstaklega hjá eldri börnum.
Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með þeim takmörkunum að ekki mega fleiri en fjórir æfa eða leika saman, snertingar eru óheimilar og halda skal tveimur metrum á milli einstaklinga. Þá skal notkun á sameiginlegum búnaði haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar.
Útfærsla fyrir golf verður kynnt bráðlega en gleðifregnirnar eru þær að allt stefnir í að unnt verði að stunda golf með nokkuð eðlilegum hætti í sumar.
