Categories
Fréttir

Okkur vantar starfskrafta í skálann í sumar !

Áríðandi orðsending frá Skálanefndinni.

Ef þið þekkið eitthvert efnilegt ungmenni sem

  1. vantar vinnu
  2. þið mynduð vilja hafa sem starfsmann í skála
  3. myndi vilja vinna hjá okkur í skálanum í sumar

skuluð þið annaðhvort hvetja viðkomandi til að hafa samband við okkur t.d.  í gemsann 897 5485 eða hafa sjálf samband við okkur og við getum svo haft samband viðkomandi.

Eins og síra Mattías sagði:

Er skín við sólu Skagafjörður,

skreytir Nafir grassins svörður,

er skúbb að vera skálavörður,

skýlaus allra meina bót,

Powerade og pylsur selja,

pening fyrir klúbbinn telja,

leigja kerru, kylfur velja

klósett þrífa og skrá í mót.

Hvar skal byrja, hvar skal lenda,

hvert er  börnin skást að senda?

Heilbrigt starf á Hlíðarenda

hollt er ungum, grepp og snót!

 

Með bestu kveðju frá skálanefnd 

Margrét skálamamma & Gunnar skálapabbi

Categories
Fréttir

1.maí golfmótið á Hellu

Þá styttist í árlegt golfmót á Hellu en það verður 1. maí nk.

Áhugasamir þurfa að tilkynna þátttöku hjá Guðmundi Ragnarssyni í síma 893 5601 eða gr@vegagerdin.is eigi síðar en 15. apríl.

 

Categories
Fréttir

Heiðar Davíð í heimsókn

Næstkomandi miðvikudag 1. apríl ( ekki gabb ) ætlar Heiðar Davíð Bragson golfkennari að heimsækja okkur á Flötina kl.12:00. Þar ætlar hann að fara yfir hópinn sem hefur verið að æfa hjá okkur og í vetur. Þau ykkar sem hafa verið að æfa undanfarið sumar en ekki komist á æfingar í vetur eru hjartanlega velkomin einnig. Endilega látið þetta berast til allra.