Viðsnúningur í rekstri klúbbins
Aðalfundur Golfklúbbs Sauðárkróks var haldinn að Hlíðarenda 9. desem
ber s.l. Um 20 félagar sóttu fundinn. Á fundinum kom fram að hagnaður af rekstri var ríflega 1,5 milljón króna, en áfram eru afborganir af lánum þungur baggi fyrir klúbbinn. Á síðasta ári voru nánast engar framkvæmdir við völlinn og tókst því að bæta fjárhaginn, en á síðasta ári var hallinn á rekstri klúbbsins um 2,6 milljónir króna. Ástæða þess halla var fyrst og fremst uppfærsla á lánum klúbbins.
Við blasir hins vegar að ráðast þarf í aðgerðir til að tryggja klúbbnum meira vatn, en þurrkasumur síðastliðin ár hafa gert það að verkum að mjög erfitt hefur verið að vökva fl
atir og brautir eins og nauðsynlegt er.
Á fundinum var ný stjórn kosin. Pétur Friðjónsson gaf áfram kost á sér sem formaður en aðrir í stjórn á næsta starfsári verða: Unnar Ingvarsson varaformaður, Ragnheiður Matthíasdóttir gjaldkeri, Dagbjört Rós Hermundardóttir ritari, Hjörtur Geirmundsson formaður unglinganefndar, Björn Sigurðsson formaður vallarnefndar og Bjarni Jónasson formaður mótanefndar, en hann kemur nýr inn í stjórn.
Skýrsla formanns, formanna nefnda og reikningar klúbbsins verða birtar von bráðar hér á síðunni.


