Það er alltaf þörf fyrir sjálfboðaliða.  Stjórnar- og nefndastarf er unnið í sjálfboðavinnu og ýmislegt annað, svo sem liðsstjórn. 
Það er alltaf þörf fyrir sjálfboðaliða hjá GSS. Hér eru nokkur dæmi um verkefni  þar sem félagar geta rétt hjálparhönd. 
- Viltu aðstoða á vellinum eða mála kylfugeymslur og skúra?   Hafðu þá samband við Guðmund Ágúst formann vallarnefndar.
 - Viltu hjálpa til í Nýprentsmótinu? Hafðu þá samband við Sylvíu formann barna- og unglinganefndar. 
 - Viltu hjálpa til við þjálfun nýliða eða vera mentor? Hafðu þá samband við Dagbjörtu formann nýliðanefndar.
 - Viltu hjálpa til við árshátíðina, t.d. að raða upp og skreyta? Hafðu þá samband við Gunnar Sandholt, sem stýrir undirbúningi árshátíðar. 
 - Viltu setja upp skemmtikvöld eða skipuleggja annan viðburð? Hafðu þá samband við Kristján Bjarna formann.
 - Viltu hjálpa til við Kvennamót? Mættu þá þegar kallið kemur 🙂 
 - Viltu taka sjoppuvakt? Hafðu þá samband við Karenu verslunarstjóra golfskálans. 
 
Í  haust endum við starfið með bráðskemmtilegu sjálfboðaliðamóti sem verður Texas Scramble líkt og á Tiltektarmóti og hentar öllum getustigum. Sjálfboðaliðar sumarsins hafa rétt til þátttöku í mótinu 🙂 
Gerum þetta saman!