Categories
Fréttir

Golfsumarið 2014 hefst með Ólafshússmóti miðvikudaginn 4. júní.

Leik fyrirkomulag Bestu holu er höggleikur með forgjöf. Nánari upplýsingar undir mótaskrá og í golfskála.

Categories
Fréttir

Demodagur á Hlíðarenda miðvikudaginn 4.júní

Þorsteinn Hallgrímsson
Þorsteinn Hallgrímsson

Demodagur á Hlíðarenda miðvikudaginn 4.júní kl. 16-19
Þorsteinn Hallgrímsson kylfusmiður og golfkennari kynnir nýjustu kylfurnar frá Titleist, Callaway, Cobra, Ping og Mizuno. Dræverar, brautartré, járn, blendingskylfur, pútterar, golfpoka og kerrur.  Þar geta kylfingar, byrjendur sem lengra komnir prófað allt það nýjasta í golfkylfum.

Við hvetjum sem flesta til að nota tækifærið og ræða við sérfræðinga í golfinu!

Stjórn GSS

Categories
Fréttir

Golfskólinn að hefjast

Golfskóli Golfklúbbs Sauðárkróks verður starfræktur í sumar og hefst hann þriðjudaginn 3.júní.

11 ára og yngri verða kl.10:00-12:00 mánudaga-föstudaga. 12 ára og eldri verða kl.10:00-15:00 mánudaga-fimmtudaga og 10:00-12:00 föstudaga. Þjálfari verður Hlynur Þór Haraldsson PGA kennari. Kynningarfundur verður mánudaginn 2.júní kl.18:00 í golfskálanum.

Allar nánari upplýsingar um golfskólann er að finna í viðhenginu hér að neðan.

Golfskólaupplýsingar 2014

Skráningu í golfskólann má senda á hjortur@fjolnet.is eða í síma 8217041.

Barna-og unglinganefnd GSS