Mótahald

Mót GSS skiptast í innanfélagsmót, opin mót og mót barna og unglinga.

Innanfélagsmót

Innanfélagsmót eru haldin fyrir félagsmenn. Rétt til þátttöku hafa félagar í GSS. Dagsetningar móta og nánari upplýsingar um þau er að finna á golfbox (golf.is).

Reglur um mót:

Miðvikudagsmótin, Kjötbanka mótaröðin.

Reglur um meistaramót GSS:

Opin mót

Opið mót er golfkeppni skipulögð og haldin af GSÍ og/eða aðildarklúbbum þess, þar sem fleiri en einum golfklúbbi, eða félögum úr fleiri en einum golfklúbbi, er heimil þátttaka. GSS stendur fyrir ýmsum opnum mótum í samstarfi við fyrirtæki. Mótin eru yfirleitt haldin á laugardögum. Um opin mót gilda móta- og keppendareglur GSÍ sem eru á heimasíðu GSÍ.
Skráning í mótin fer fram á golfbox og þar eru nánari upplýsingar um mótin.

Mót fyrir börn og unglinga

Mót fyrir börn og unglinga eru annars vegar innanfélagsmót og hins vegar opin mót sem haldin eru á vegum GSÍ eða í samstarfi golfklúbbanna á Norðurlandi, Þessi mót eru sérstaklega ætluð fyrir börn og unglinga. Ungmenni í GSS hafa jafnframt rétt til þátttöku í mótum á vegum GSS, eftir því sem reglur mótanna kveða á um. Barna- og unglinganefnd er með Facebook hóp þar sem finna má upplýsingar um mótin. Upplýsingar um opin mót eru einnig á heimasíðu GSÍ (golfbox).

Mót sumarið 2022

Innanfélagsmót
Tiltektarmót 21. maí
Miðvikudagsmótaröð – Kjötbankinn (10 mót)
Þriðjudagsmótaröð – HardWok (10 mót)
Meistaramót GSS, 11. – 16. júlí
Meistaramót GSS í holukeppni, hefst 20. júní.
Gullteigamót, júlí – ágúst
Vanur/óvanur byrjun júlí, að loknu nýliðanámskeiði


Opin mót
KS (Texas scramble) – 5. júní,
Nýprent Open barna og unglinga, 12. júní
Jómfrúin / Friðriksmót 25. júní,
Kvennamótið 2. júlí
AVIS 24. júlí,
Steinullarmótið 31. júlí
Hlíðarkaupsmótið 6. ágúst
Advania (betri bolti) 20. ágúst.

Meistaramót GSS 2019

Uppfært í maí 2022 – Mótanefnd

Comments are closed.