
Hafið samband við formann barna- og unglinganefndar til að fá upplýsingar um golfskólann.
Sjá stjórnir og nefndir: http://www.gss.is/um-gss/stjornnefndir/
Almennar hegðunarreglur:
- Iðkendur og þjálfarar skulu ávallt koma fram af kurteisi og virðingu.
- Klæðst skal snyrtilegum fatnaði, gallabuxur eru ekki leyfðar og höfuðföt eru tekin niður innandyra.
- Iðkendum ber að fara eftir fyrirmælum þjálfara síns og vallarstjóra eins og þeim er framast unnt.
- Iðkendum og þjálfara ber að sýna meðspilurum sínum og þeirra aðstoðarfólki / þjálfurum almenna kurteisi.
- Iðkendur og þjálfarar skulu mæta stundvíslega á æfingar og nota tímann vel.
- Iðkendur og þjálfarar skulu kappkosta við að ganga vel um skála, skýli, æfingasvæðið og golfvöllinn sjálfan.
- Mikilvægt er að setja torfusnepla í kylfuför og laga boltaför á flötum.
- Kylfingum ber að halda eðlilegum leikhraða.
- Ekki skal fara með golfpoka eða kerrur inn á flatir eða teiga.