GSS leggur metnað sinn í að halda uppi öflugu barna- og unglingastarfi. Barna- og unglinganefnd er með eigin facebook síðu til að halda utan um samskipti við forráðamenn. Vinsamlega hafið samband við formann barna- og unglinganefndar til að fá nánari upplýsingar.
Starfið:
- Inniæfingar eldri hóps febrúar – apríl. A.m.k. mánaðarlegar æfingar yngri hóps.
- Vikulegar æfingar á útisvæði í maí.
- Sumaræfingar júní – júlí. Daglega virka daga.
- Meistaramót barna og unglinga.
- Reglulegar heimsóknir gestakenanra.
- Mótahald: Nýprent mótið.
- Þátttaka í mótum: Íslandsmóti golfklúbba, Norðurlandsmótaröðin.
- Félagsandinn efldur. Speedgolf, haustferð, o.fl.
- Uppskeruhátíð.