Categories
Fréttir

Golfhermirinn kominn í gagnið

Ágætu félagar í GSS, gleðilegt nýtt ár!

Þó svo að inniaðstaðan sé ekki tilbúin þá er golfhermirinn kominn í gagnið og býðst félögum að spila frítt 9holur fram á næsta sunnudag, 6.janúar. Hægt er að skrá sig á blað sem hangir uppi í Borgarflöt 2. Að lágmarki skulu 3 spila saman í holli. Hægt er að hafa samband við eftirtalda til að komast í golfherminn: Muggur 891 6244, Kristján 894 5276, Guðmundur 893 5601, Pétur 863 6191 og Unnar 892 6640.

Categories
Fréttir

Jólakveðja

Ágætu félagar og aðrir velunnarar Golfklúbbs Sauðárkróks

Okkar bestu jólakveðjur til ykkar allra með von um gott golfár 2013

Stjórn GSS

Categories
Fréttir

Vinnudagur í Borgarflöt 2 á Sunnudag

Á sunnudag er ætlunin að reyna að klára málningarvinnu að Borgarflöt 2 – Þeir sem geta aðstoðað mæti  um kl.14. Þeir sem eiga málningarverkfæri mæti með þau.