Sunnudaginn 5. júní verður haldið fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröðinni á Hlíðarendavelli. Skráning á mótið er hjá www.golf. is en frekari upplýsingar um mótaröðina má sjá á heimasíðu hennar: http://www.motarod.muna.is/
Category: Fréttir
Texas scramble á laugardaginn
Opna KS mótið verður haldið á Hlíðarendavelli n.k. laugardag og hefst kl. 10:00. Skráning og nánari upplýsingar á www.golf.is
Dagskrá dótadags á Hlíðarenda
Dagskrá dótadags hjá Golfklúbbi Sauðárkróks
Laugardagur 25. maí.
Kl: 10:00-13:00 Opið hús í golfskálanum. Kaffi á könnunni. Kynningar á vörum frá Cintamani og N-1. Gamlar hreyfimyndir úr starfi klúbbsins sýndar. Markaður með golfvörur – notaða poka, kylfur, föt, kerrur eða skó. Öllum er frjálst að koma með vörur á markaðinn. Æskilegast að þær komi fyrir kl: 10.00 um morguninn, þar sem aðstoðað verður með verðlagningu.
Richard Hughes verður á staðnum þar sem hægt verður að ræða við hann um golfkennslu, kulda, eldgos og annað sem kemur upp í hugann. Hann veitir ráðleggingar varðandi lagfæringu á kylfum, skiptingu á gripum o.fl.
Kl: 13:00 Golfsýning (trickshots) Richard Hughes kynnir sig og sýnir hvernig hægt er að meðhöndla kylfur og bolta.
Kl. 14:00 Hraðmót á Hlíðarendavelli. (nánar auglýst síðar)
Allir eru velkomnir að kynna sér starfsemi GSS, hvort sem þeir eru félagar í klúbbnum eður ei. Kaffi á könnunni.
Nefndin.
