Categories
Fréttir

Glæsilegt afmælishóf

Glæsilegt afmælishóf GSS var haldið á Mælifelli síðastliðið laugardagskvöld. Skemmtu gestir sér konunglega undir góðri veislustjórn Gunnars Sandholts, sem samnýtti „gamlar kynningar frá Kórnum“ og golfsögur til að halda uppi góðri stemmingu. Forseti GSÍ Jón Ásgeir Eyjólfsson og gjaldkeri GSÍ, Eggert Ágúst Sverrisson mættu til leiks ásamt mökum sínum og heiðraði Jón Ásgeir af því tilefni nokkra félaga fyrir vel unnið starf. Gullmerki hlutu þeir. Magnús Rögnvaldsson, fyrir frumkvöðlastarf við uppbyggingu klúbbsins. Sigurjón Gestsson, fyrir störf að gróðursetningu á vellinum og Hjörtur Geirmundsson fyrir ríflega 20 ára starf innan stjórnar klúbbsins. Silfurmerki GSÍ hlutu þau Árný Árnadóttir fyrir að vera leiðandi í kvennagolfi, kynningarstarf og kennslu og Ásgeir Einarsson fyrir störf varðandi framtíðaruppbyggingu golfsvæðisins.

Í afmælinu var Steinar Skarphéðinsson gerður að heiðursfélaga GSS. Steinar var fremstur í hópi þeirra, sem unnu gríðarlegt starf við uppbyggingu golfvallarins að Hlíðarenda. Fyrir þau störf er honum þakkað með þessari viðurkenningu. Hélt Steinar ræðu þar sem hann lýsti fyrir  afmælisgestum þessum fyrstu árum að Hlíðarenda.

Á afmælinu voru jafnframt kynnt nöfn brauta er þau má sjá hér á síðunni. Endanleg ákvörðun um brautarnöfn bíður hins vegar aðalfundar.

Klúbbnum bárust góðar kveðjur og Stefán Pedersen gaf klúbbnum af þessu tilefni kvikmyndir frá bændaglímum á 9. áratug 20. aldar, sem mikill fengur er í.

Þá má geta þess að Rafn Ingi Rafnsson hlut sértök verðlaun og bikar, svokallaðan Háttvísibikar, sem veittur verður þeim kylfingi sem talinn er hafa sýnt af sér sanna íþróttamennsku og háttvísi. Bikarinn er farandbikar, sem verður veittur árlega.

Categories
Fréttir

Afmælishátið Golfklúbbs Sauðárkróks 6 nóvember á Mælifelli

Næstkomandi laugardag verður haldin glæsileg afmælisveisla Golfklúbbs Sauðárkróks á Mælifelli á Sauðárkróki. Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 19:30.

Miðaverð kr. 5900.

Nauðsynlegt er að skrá sig í veisluna á netfanginu petur@saudarkrokur.is

Categories
Fréttir

Opna Skýrr mótið – úrslit

Opna Skýrr mótið var haldið í dag með Greensome fyrirkomulagi.
40 þáttakendur voru eða 20 pör. Mótið fór fram í blíðskaparveðri þó að þokan hafi aðeins verið að stríða kylfingunum til að byrja með.
Úrslit urðu þessi:
1. sæti – Hjörtur F. Jónsson og Guðni Kristjánsson GSS 67 högg nettó
2. sæti – Reynir Barðdal og Frímann Guðbrandsson GSS 67 högg nettó
3. sæti – Ragnheiður Matthíasdóttir og Halldór Halldórsson GSS 71 högg nettó
4. sæti – Ólafur Árni Þorbergsson og Arnar Ólafsson GSS 71 högg nettó
5. sæti – Elvar Ingi Hjartarson og Hjörtur Geirmundsson GSS 72 högg nettó

Þá voru einnig veitt nándarverðlaun.
Á 3/12. holu – Dóra Kristín Kristinsdóttir GHD 1,60 m.
Á 6/15. holu – Þröstur Kárason GSS 2,22 .