Golfklúbbur Sauðárkróks verður með opið hús fyrir alla á Flötinni – inniaðstöðu klúbbsins á Borgarflöt – n.k. laugardag 15.nóvember milli kl.13 og 16 . Golfhermirinn verður opinn fyrir fólk að prófa og einnig verður kennt á hann og eins hvernig hægt er að bóka tíma í hann. Þá verður lika hægt að slá í net,vippa og pútta. Allir sem mæta verður boðið að taka þátt í púttmóti. Við viljum hvetja alla sem hafa áhuga á að kíkja við og kynna sér þessa frábæru aðstöðu.
Category: Fréttir
Uppskeruhátíð barna og unglingastarfs Golfklúbbs Sauðárkróks var haldin í dag. Flott mæting var og mikil stemming. Byrjað var á Flötinni og þar var tekið létt púttmót og allir fengu að prófa golfherminn.





Að því búnu var farið í golfskálann þar sem allir fengu gjöf frá KPMG og síðan voru veittar viðurkenningar fyrir starfið:
Bestu kylfingarnir voru þau Aldís Ósk Unnarsdóttir og Elvar Ingi Hjartarson
Mestu framfarir hlutu Bogi Sigurbjörnsson, Reynir Bjarkan Róbertsson og Telma Ösp Einarsdóttir
Efnilegust voru Anna Karen Hjartardóttir og Hákon Ingi Rafnsson
Bestu ástundum fengu Maríanna Ulriksen og Gabríel Brynjarsson.
Síðan voru veitt verðlaun fyrir þau sem voru til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan. Þau hlutu Hildur Heba Einarsdóttir og Arnar Freyr Guðmundsson.
Að þessu loknu voru veitingar að hætti barna- og unglingastarfsins.
Myndir frá uppskeruhátíðinni er að finna á Golfmyndir GSS.
Uppskeruhátíð barna og unglinga
Þá er komið að uppskeruhátíðinni. Hún verður n.k. laugardag 4.október kl.16:00.
Við ætlum að byrja á Flötinni þar sem við tökum stutt púttmót og leyfum síðan öllum að prófa golfherminn. Eftir það förum við upp í golfskála þar sem veittar verða viðurkenningar fyrir sumarið og jafnvel pizzuveisla – hver veit !!!. Allir sem mæta fá glaðning eins og undanfarin ár. Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir. Endilega látið þetta berast til allra sem voru í golfskólanum í sumar.

