Fimmtudaginn 26.júní ætla börn og unglingar hjá Golfklúbbi Sauðárkróks að spila golfmaraþon. Ætlunin er að ná að spila 1000 holur þennan dag og hefjast þau handa kl.8. Enginn reglulegur golfskóli verður því þennan dag en þau sem ætla að taka þátt í þessu geta mætt strax klukkan 8 og byrjað að spila. Við vonumst til að þessum áfanga verði náð klukkan 20 og þá ætlum við að fagna því á viðeigandi hátt í golfskálanum. Þessa dagana eru kylfingarnir að ganga í hús á Sauðárkróki og safna áheitum. Við vonum að bæjarbúar taki vel á móti þeim. Þeir sem vilja styrkja geta líka lagt inn á reikning 0310-26-2106 kt.570884-0349. Við viljum hvetja alla til mæta á Hlíðarendavöll og fylgjast með þessum skemmtilega leik okkar á fimmtudaginn.
Category: Fréttir
Úrslit í Nýprent Open
Sunnudaginn 15.júní fór fram Nýprent Open barna-og unglingagolfmótið á Hlíðarendavelli.
Mótið er hluti af Norðurlandsmótaröð barna-og unglinga og er það fyrsta í röðinni þetta sumarið.
Keppendur voru rúmlega 70 úr klúbbum víðsvegar af Norðurlandi auk þess sem einn keppandi kom úr Golfklúbbnum Kili, Mosfellsbæ
Allar upplýsingar um mótið er að finna á www.golf.is. Fjöldi mynda úr mótinu er að finna á Facebook hópnum „Golfmyndir GSS“.
Úrslitin urðu þessi:
| Byrjendaflokkur stelpur | Klúbbur | Högg |
| 1. Auður Bergrún Snorradóttir | GA | 52 |
| 2. Tinna Klemenzdóttir | GA | 54 |
| 3. Anna Karen Hjartardóttir | GSS | 54 |
| Byrjendaflokkur strákar | ||
| 1. Björgvin Grétar Magnússon | GÓ | 46 |
| 2. Veigar Heiðarsson | GHD | 51 |
| 3. Víðir Freyr Ingimundarson | GÓ | 52 |
| 12 ára og yngri stelpur | ||
| 1. Ástrós Lena Ásgeirsdóttir | GHD | 61 |
| 2. Hildur Heba Einarsdóttir | GSS | 79 |
| 3. Maríanna Ulriksen | GSS | 84 |
| 12 ára og yngri strákar | ||
| 1. Sveinn Andri Sigurpálsson | GKJ | 43 |
| 2. Mikael Máni Sigurðsson | GA | 47 |
| 3. Brimar Jörvi Guðmundsson | GA | 55 |
| Flestir punktar á 9 holum | ||
| 1. Sveinn Andri Sigurpálsson | GKJ | 26 pkt |
| 2. Veigar Heiðarsson | GHD | 20 pkt |
| 14 ára og yngri stelpur | ||
| 1. Andrea Ýr Ásmundsdóttir | GA | 97 |
| 2. Amanda Guðrún Bjarnadóttir | GHD | 102 |
| 3. Ásrún Jana Ásgeirsdóttir | GHD | 115 |
| 14 ára og yngri strákar | ||
| 1. Hákon Ingi Rafnsson | GSS | 81 |
| 2. Lárus Ingi Antonsson | GA | 81 |
| 3. Gunnar Aðalgeir Arason | GA | 86 |
| 15-16 ára stúlkur | ||
| 1. Ólöf María Einarsdóttir | GHD | 82 |
| 2. Magnea Helga Guðmundsdóttir | GHD | 94 |
| 3. Erla Marý Sigurpálsdóttir | GÓ | 103 |
| 15-16 ára strákar | ||
| 1. Kristján Benedikt Sveinsson | GA | 72 |
| 2. Arnór Snær Guðmundsson | GHD | 80 |
| 3. Stefán Einar Sigmundsson | GA | 81 |
| 17-21 árs stúlkur | ||
| 1. Aldís Ósk Unnarsdóttir | GSS | 78 |
| 2. Stefanía Elsa Jónsdóttir | GA | 87 |
| 3. Hekla Kolbrún Sæmunsdóttir | GSS | 96 |
| 17-21 árs piltar | ||
| 1. Ævarr Freyr Birgisson | GA | 73 |
| 2. Víðir Steinar Tómasson | GA | 76 |
| 3. Ingvi Þór Óskarsson | GSS | 77 |
| Nýprent meistarar – fæst högg: | ||
| Aldís Ósk Unnarsdóttir | GSS | 78 |
| Kristján Benedikt Sveinsson | GA | 72 |
| Flestir punktar á 18 holum | ||
| 1. Aldís Ósk Unnarsdóttir | GSS | 44 pkt |
| 2. Hákon Ingi Rafnsson | GSS | 42 pkt |
| 3. Kristján Benedikt Sveinsson | GA | 40 pkt |
| 4. Brimar Jörvi Guðmundsson | GA | 39 pkt |
| 5. Aron Elí Gíslason | GA | 38 pkt |
| Næst holu á 6.braut | ||
| Byrjendur: Veigar Heiðarsson | GHD | |
| 12 ára og yngri: Sveinn Andri Sigurpálsson | GKJ | |
| 14 ára og yngri: Lárus Ingi Antonsson | GA | |
| 15-16 ára: Aðalsteinn Leifsson | GA | |
| 17-18 ára: Víðir Steinar Tómasson | GA |
Nýprent mótið um næstu helgi
Sunnudaginn 15.júní n.k. verður Opna Nýprent mótið haldið á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki.
Mótið er hluti af Norðurlandsmótaröð barna og unglinga og er fyrsta mótið á þessu sumri.
Sjá meðf. auglýsingu um mótið.
Skráning er hafin á www.golf.is
Við viljum vekja sérstaka athygli á byrjendaflokknum og þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í honum er bent á að hafa samband við Hlyn golfþjálfara. Hann fer yfir skráninguna með þeim.
Skilyrði er að foreldrar/forráðamenn eða aðrir verði kylfuberar þeim sem taka þátt í byrjendaflokkunum.
Skráningareyðublað er í golfskálanum.
Það verður síðan grillaðar pylsur fyrir allan hópinn að þegar leik er lokið.
Ef einhverjir hafa möguleika á að aðstoða við framkvæmd mótsins þá vinsamlega hafið samband við undirritaðan.

