Nú styttist í að púttteppið verði lagt í nýju æfingaraðstöðuna og því stendur fyrir dyrum að hefja alsherjarþrif á húsnæðinu. Allir sem tusku geta valdið eru beðnir um að koma í Borgarflötina fimmtudagskvöldið 24. jan. klukkan 20:00. Þeir sem eiga tuskur mega gjarnan taka þær með.
Þrátt fyrir að mikið vetrarríki sé að Hlíðarenda þessa daganna, virðist ástand flestra flata fremur gott. Lítil snjór er á flestum flötunum en snjór og klaki þó verulegur á nýju 9. flötinni. Mikill snjór er á sumum brautunum og er 1. brautin hreinlega á kafi og líklega allt að 2-3 metra skaflar eftir allri brautinni. Í öllu falli er ástandið miklu betra en það var fyrir nokkrum vikum og góð hláka í vikunni gæti bætt stöðuna enn frekar. Meðfylgjandi eru myndir teknar í dag 13. janúar 2013.