Nú er aðeins endahnykkurinn eftir við að ljúka 9 flötinni. Hins vegar vantar vinnufúsar hendur til að svo megi verða. Þess vegna er óskað eftir sjálfboðaliðum frá kl. 15:00 í dag og á morgun frá um 8 eða 9 og þangað til verkinu lýkur. Um er að ræða að raka til mold (og garðhrífur því mikilvægar) og síðan þökulagning í fyrramálið. Sumsé allir upp á dekk sem vettlingi geta valdið.
Úrslit í Norðvesturþrennunni
Nú er búið að taka saman úrslit í hinni árlegu Norðvesturþrennu, sameiginlegri golfmótaröð golfklúbbanna á Norðurlandi vestra. Um er að ræða Golfklúbbinn á Sauðárkróki, Golfklúbb Skagastrandar og Golfklúbbinn Ós á Blönduósi. Keppt er einu sinni á hverjum velli og í heildarkeppninni eru lagðir saman punktar keppenda úr hverju móti fyrir sig.
Fyrsta mótið fór fram á Skagaströnd á Þjóðhátíðardaginn 17. júní, annað mótið var um verslunarmannahelgina á Hlíðarendavelli og það þriðja þann 20. ágúst á Blönduósi. Samtals tóku tæplega 90 keppendur þátt í mótunum þremur.
Að vanda stóðu keppendur GSS sig með sóma þar sem Sigríður Elín hafði sigur í kvennaflokki án forgjafar og Einar Einarsson lenti í öðru sæti bæði í opnum flokki með forgjöf og í karlaflokki án forgjafar.
Haraldur Friðriks lenti svo í þriðja sæti í sama flokki. Úrslit urðu sem hér segir:
Opinn flokkur með forgjöf:
Jón Jóhannsson GÓS 100 punktar
Einar Einarsson GSS 99 punktar
Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 90 punktar
Kvennaflokkur án forgjafar:
Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 51 punktur
Guðrún Ásgerður Jónsdóttir GÓS 50 punktar
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir GÓS 29 punktar
Karlaflokkur án forgjafar:
Jón Jóhannsson GÓS 73 punktar
Einar Einarsson GSS 71 punktur
Haraldur Friðriksson GSS 71 punktur
Breytingar á Hlíðarendavelli
Varla hefur farið framhjá glöggum kylfingum að miklar framkvæmdir standa nú yfir við 9. flöt vallarins. Verið er að vinna að uppbygginu á nýrri flöt, en sú gamla hefur verið nær ónýt vegna kalskemmda síðustu ár. Vallarnefnd lagði til að byggð yrði upp ný flöt og stjórn samþykkti framkvæmdirnar sem verður að mestu lokið nú á haustdögum. Líklega verður hægt að spila inn á nýju flötina síðla næsta sumar, en gamla flötin verður í notkun þangað til.
