Meistaramóti GSS lokið

Meistaramóti GSS 2018 lauk nú um helgina
Meistaramót Golfklúbbs Sauðárkróks í flokki fullorðinna var haldið 4-7.júlí.
Keppt var í nokkrum flokkum og var þátttaka með ágætum í flestum þeirra.
Veðrið var með ágætum alla dagana þrátt fyrir að veðurspár voru ekki sammála, og voru veður spár mun verri en varð í raun. Spilaðar voru 72 holur á fjórum dögum í öllum flokkum nema öldungaflokki kvenna þar sem spilaðar voru 54 holur.
Hlíðarendavöllur er í sína besta standi eins og síðastliðið sumar og ástæða til að hvetja fólk til að skella sér á völlinn.
Lokahóf meistaramóts var síðan haldið í Golfskálanum laugardagskvöldið 7.júlí.
Klúbbmeistarar GSS að þessu sinni urðu þau Árný Lilja Árnadóttir og Arnar Geir Hjartarson.
En helstu úrslit og skor voru eftirfarandi:


Meistaraflokkur karla:
1. sæti. Arnar Geir Hjartarson 317 högg.
2. sæti. Brynjar Örn Guðmundsson 322 högg
3. sæti Jóhann Örn Bjarkason 328 högg


Meistaraflokkur Kvenna:
1. sæti. Árný Lilja Árnadóttir 331 högg
2. sæti. Hildur Heba Einarsdóttir 366 högg
3. sæti. Sigríður Elín Þórðardóttir 374 högg, en hún varð í 3. sæti eftir umspil við Dagbjörtu Rós Hermundardóttir.


1. flokkur karla.
1. sæti. Guðmundur Þór Árnason 353 högg
2. sæti. Andri Þór Árnason 359 högg
3. sæti. Friðjón Bjarnason 368


2. flokkur karla.
1, sæti. Þórhallur Rúnar Rúnarsson 448 högg
2. sæti. Pétur Björnsson 588 högg


Öldungaflokkur kvenna.
1. sæti. Ólöf Herborg Hartmannsdóttir 318 högg
2. sæti. Hafdís Skarphéðinsdóttir 334 högg
3. sæti. Kristrún Snjólfsdóttir 384 högg

Categories: Mótanefnd

Úrslit í Opna Nýprent barna- og unglingamótinu

Opna Nýprent, fyrsta mótið í Titleist-Footjoy Norðurlandsmótaröðinni fór fram á Hlíðarendavelli 17. júní í léttri norðanátt og sól.  Keppendur voru 38 víða af Norðurlandi.  Nýprent meistarar að þessu sinni urðu þau Amanda Guðrún Bjarnadóttir GHD (77 högg) og Kristján Benedikt Sveinsson GA (76 högg) en þann titil hljóta þeir kylfingar sem leika 18 holur á fæstum höggum.  Nándarverðlaun voru á 6/15 braut og vippkeppni fyrir alla keppendur að leik loknum.

Sigurvegarar í flokkakeppni voru eftirfarandi:

18-21 ára drengir:

  1. Kristján Benedikt Sveinsson GA, 76 högg
  2. Víðir Steinar Tómasson GA, 82 högg
  3. Þorgeir Örn Sigurbjörnsson GFB, 97 högg

18-21 ára stúlkur:

  1. Amanda Guðrún Bjarnadóttir GHD, 77 högg

15-17 ára drengir:

  1. Lárus Ingi Antonsson GA, 79 högg
  2. Gunnar Aðalgeir Arason GA, 82 högg
  3. Hákon Ingi Rafnsson GSS, 84 högg

15-17 ára stúlkur:

  1. Andrea Ásmundsdóttir GA, 78 högg
  2. Marianna Ulriksen GA, 84 högg
  3. Sara Sigurbjörnsdóttir GFB, 98 högg

14 ára og yngri drengir:

  1. Óskar Páll Valsson GA, 79 högg
  2. Dagur Axelsson GA, 119 högg
  3. Guðmundur Ingi Guðmundsson GA, 119 högg

14 ára og yngri stúlkur:

  1. Anna Karen Hjartardóttir GSS, 99 högg
  2. Kara Líf Antonsdóttir GA, 107 högg

12 ára og yngri drengir:

  1. Veigar Heiðarsson GHD, 42 högg
  2. Snævar Bjarki Davíðsson GHD, 47 högg
  3. Skúli Gunnar Ágústsson GA, 49 högg

12 ára og yngri stúlkur:

  1. Birna Rut Snorradóttir GA, 56 högg
  2. Una Karen Guðmundsdóttir GSS, 57 högg
  3. Rebekka Helena Róbertsdóttir GSS, 58 högg

Einnig var keppt í byrjendaflokki þar sem allir fengu verðlaun en ekki var raðað í sæti.

Næsta mót í Titleist-Footjoy Norðurlandsmótaröðinni verður haldið á Dalvík 15. júlí.

 

Categories: Börn og unglingar

John Garner golfkennari

Á föstudaginn kemur John Garner til okkar í fyrsta skiptið þetta sumarið.  Hann kennir börnum á föstudag og býður upp á einka- og hópkennslu fyrir fullorðna á laugardag. Þetta er frábært tækifæri til að pússa til sveifluna í byrjun vertíðar.

Verð fyrir kennslu er eftirfarandi:

Einkatímar – 8.000 kr. Innifalið í gjaldinu er 30 mínútna kennsla ásamt myndbandsgreiningu og leiðsögn.

Paratímar – 6.000 kr. á mann. Innifalið í gjaldinu er kennsla í 60 mínútur.

Hóptímar (6 – 8 í hóp) – 5.000 kr. á mann. Innifalið í gjaldinu er kennsla í 90 mínútur.

Upplýsingar og skráning hjá Árnýju í s. 8499420.

Categories: Afreksstarf