Categories
Fréttir

Arnar Geir með vallarmet á Meistaramóti GSS af hvítum teigum

Arnar Geir Hjartarson setti nýtt vallarmet af hvítum teigum á öðrum hring í Meistaramóti GSS sem fer á Hlíðarenda 6.-9. júlí.

Arnar Geir spilaði hringinn á einu höggi undir pari eða á 71 höggi.  Frábær árangur hjá þessum unga og efnilega kylfingi sem heldur til Bandaríkjana í haust í háskóla í Missouri Valley College. IMG_holumeistari 2014

Categories
Fréttir

Kvennamót GSS

Kvennamót GSS var haldið 2.júlí s.l.
48 konur mættu á mótið sem gekk mjög vel í alla staði.
Hér er mynd af hluta þáttakenda

Öll úrslit er að finna á www.golf.is

kvennamot 2016

/>
/>
/>

Categories
Fréttir

GSS sendir sveitir í Íslandsmót golfklúbba nú um helgina

Íslandsmót golfklúbba verður haldið dagana 24-26.júní víðsvegar um landið.
GSS sendir bæði sveitir til keppni í kvenna- og karlaflokki.
Kvennasveit GSS leikur í 2.deild á Selfossi.
Sveitina skipa þær:
Árný Lilja Árnadóttir
Dagbjört Hermundsdóttir
Ingibjörg Guðjónsdóttir
Sigríður Elín Þórðardóttir
Telma Ösp Einarsdóttir

Karlasveit GSS leikur í 3.deild á Húsavík:
Sveitina skipa þeir:
Arnar Geir Hjartarson
Brynjar Örn Guðmundsson
Elvar Ingi Hjartarson
Jóhann Örn Bjarkason
Jón Þorsteinn Hjartarson

Hægt verður að fylgjast með framvindu í www.golf.is alla dagana.