Aðalfundir framundan
Aðalfundur GSS Golfhermis verður haldinn mánudaginn 8. desember 2014 kl. 17.00, að Hlíðarenda
Venjuleg aðalfundarstörf
Daginn eftir eða þriðjudaginn 9.desember 2014 kl.20:00 verður síðan aðalfundur Golfklúbbs Sauðárkróks haldinn að Hlíðarenda.
Hvetjum sem flesta til að gefa kost á sér í nefndir og/eða bjóða sig fram í stjórn klúbbsins.
Samkvæmt lögum GSS þá skal kjósa á næsta aðalfundi formann, gjaldkera, formann mótanefndar og formann vallarnefndar og er öllum frjálst að bjóða sig fram í þessi störf.
Hvetjum við félagsmenn til að bjóða sig fram til nefndastarfa, til þess þarf ekki að hafa verið í golfi um lengri tíma heldur geta allir tekið þátt í starfi klúbbsins – vanir/óvanir, ungir/aldnir, konur eða karlar.
Dagskrá aðalfundar:
- Skýrsla stjórnar og nefnda
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar og varamanna.
- Kosning í aðrar nefndir samanber 9.gr.
- Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og tveir til vara.
- Kosning fulltrúa Golfþing GSÍ og á þing U.M.S.S.
- Ákvörðun inntökugjalds samkv. 3gr.
- Ákvörðun félagsgjalda samkv. 5.gr.
- Önnur mál.
Stjórn GSS