Jónsmessugleði GSS fór fram með pompi og prakt á Hlíðarendavelli á að kveldi sumarsólstöðudags þann 21. júní 2013 (sem voru nákvæmlega kl. 05.04 í ár að staðartíma), þremur dögum fyrir Jónsmessu sem er fæðingarhátíð Jóhannesar skírara. Ekki er vitað til að sá Jói hafi verið skýrari í golfi en t.d. Gestur Sigurjónsson, sem bar sigur úr býtum og hreppti til varðveislu hinn eftirsótta Jónsmessupela. Fær hann nafn sitt letrað á gripinn en verður að skila honum að ári átöppuðum. Gestur þurfti ásamt öðrum keppendum að leysa nokkrar snúnar þrautir auk þess að koma kúlunni í holur sem voru ævintýralega staðsettar. T.d. að slá teighögg með pútter á þriðju, með örvhentri kylfu á fimmtu og með bundið fyrir augu á áttundu. Þessar þrautir leysti Gestur snilldarlega. Ágreiningur var vakinn upp frammi fyrir dómara í mótslok um verðlaunaafhendinguna þar sem tilkynnt hafði verið var í byrjun að enginn gestur gæti hreppt pelann góða. Dómari blés á þetta andóf og vitnaði í hið fornkveðna að glöggt sé Gests golfið.
Author: Golfklúbbur
Landsmót UMFÍ
Vakin er athygli á að skráning á Landsmót UMFÍ, sem fram fer á Selfossi rennur út á mánudag. Öllum er heimilt að skrá sig til leiks á vef UMFÍ og eru félagsmenn hvattir til að taka þátt í þessu skemmtilega móti.
Örnámskeið hjá golfkennara
Mark Irving býður upp á örnámskeið í golfi á æfingarsvæðinu þrisvar sinnum í næstu viku. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og láta kíkja á sveifluna. Þá eru lausir tímar í golfkennslu og í byrjendanámskeið sem hefst n.k. mánudag.
Komdu og láttu Mark Irving skoða sveifluna þína.
Allir velkomnir á eftirfarandi tímum.
Sunnudagur 23.6. 10.00 á æfingasvæðinu
þriðjudagur 25.6 19.00 á æfingasvæðinu
Fimmtudagur 27.6 19.00 á æfingarsvæðinu
Verð: 1000,- á mann. 1 fata af boltum innifalin.
Engin skráning. Bara að mæta.
Sjámst
Mark
Sími. 6617827
