Veðurguðirnir voru ekki í sértaklega góðu skapi í gær þegar fyrsta mótið í Ólafshúsmótaröðinni fór fram, strekkingsvindur og slydda með köflum. Alls tóku 13 kylfingar þátt í mótinu og létu veðrið ekki hafa áhrif á sig. Sigurvegar í höggleik var Guðmundur Ragnarsson sem spilaði á 85 höggum en Atli Freyr Marteinsson sigraði í punktakeppni með 33 punkta.
Category: Fréttir
Reglugerð um Ólafshúsmótaröð
Ólafshússmótaröðin hefst næstkomandi miðvikudag og eru því birtar reglur um mótaröðina eins og mótanefnd hefur samþykkt.
Ólafshúsmótaröð
Ekki skal byrja leik fyrr en kl. 14:00 og eigi síðar en kl. 19:00 til og með 27 júlí en eftir það skal ekki ræsa út eftir kl. 17:30
Við sérstakar aðstæður getur mótanefnd veit undanþágur frá þessum tímamörkum.
Skylt er að greiða mótsgjald, 1.200,- kr. áður en leikur hefst. Ef greitt er fyrir 10 mót í einu fæst afsláttur sem nemur 200 kr. á hvert mót. Gestir greiða gjald sem nemur 18 holu gjaldi skv. gjaldskrá. Ef gestur er í fylgd GSS félaga greiðir hann gjald sem nemur 9 holu gjaldi skv. gjaldskrá.
Félagar í GSS eiga að skrá sig á netinu http://golf.is/pages/forsida1/motaskra/ á rástíma. Hægt verður að skrá sig í skála inn á rástíma í gengum www.golf.is Rástímar verða settir upp á tímabilinu 15:00 til 19:00* og er ætlast til þess að ekki verði fleiri en 3 í ráshóp.
Verðlaun verða afhent eigi síðar en kl. 10:00 eða við mótslok
Keppnisfyrirkomulag mótaraðarinnar er punktakeppni með og án forgjafar.
Í hverju móti eru veit verðlaun fyrir fyrsta sæti í hvorum flokki fyrir sig, 3.000 króna gjafabréf frá Ólafshúsi.
Bestum samanlögðum árangri í sjö af tíu mótum sumarsins, í hvorum flokki fyrir sig, fylgir sæmdarheitið “Golfkappi” Golfklúbbs Sauðárkróks árið 2011. og 10.000 króna gjafabréf frá Ólafshúsi.
Einungis þeir sem eru með virka* forgjöf eiga möguleika til að vinna til verðlauna á hverju móti fyrir sig. Til að geta unnið til sæmdarheitsins Golfkappi þarf að taka þátt í amk. 7 mótum með virkri forgjöf.
Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga á reglugerð þessari og auglýsir þær á viðeigandi hátt í Skála og á netinu.
*Virk forgjöf: hafa skilað inn 4 gildum skorkortum eða hafa virka forgjöf á golf.is
Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröð lágforgjafarkylfinga var haldið á Hlíðarendavelli í gær sunnudaginn 5.júní. Veðurguðirnir voru kylfingum ekki hagstæðir, slagveðursrigning var lengst af og því erfitt að hemja boltann.
Mótið er það fyrsta af nokkrum sem haldin verða víðs vegar á Norðurlandi í sumar. Að þessu sinni voru einungis keppendur í karlaflokki.
Úrslit urðu sem hér segir:
Meistaflokkur:
- Konráð V. Þorsteinsson GA
- Ólafur Gylfason GA
- Örvar Samúelsson GA
1.flokkur:
- Arnar Geir Hjartarson GSS
- Ingvi Þór Óskarsson GSS
- Örn Viðar Arnarson GA
