Categories
Fréttir

Golfskólinn hefst þriðjudaginn 6.júní

SUMARÆFINGAR GSS   JÚNÍ – ÁGÚST 2017

Mánudagur – fimmtudagur 9:00-10:30 Golfskóli 11 ára og yngri

Mánudagur – fimmtudagur 13:00-15:00 Golfskóli 12 ára og eldri

Allar nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðunni undir Unglingastarf

Categories
Fréttir

1.mótið í Hard Wok mótaröðinni 6.júní

1.háforgjafarmótið í Hard Wok mótaröðinni byrjar á morgun þriðjudaginn 6.júní.

Mótið hefst kl. 17 og eru allir ræstir út um það leyti.

Skráning á golf.is

Categories
Fréttir

Úrslit í Opna KS mótinu

Fyrsta opna mót sumarsins var haldið á Hlíðarendavelli laugardaginn 3.júní – Opna KS mótið.

Rjómablíða var nánast allan tímann og völlurinn hefur aldrei verið eins góður í byrjun golfvertíðar og núna í ár. Leikið var með Texas Scramble fyrirkomulagi og voru 18 lið skráð til leiks eða samtals 36 kylfingar.  Keppnin var hörð og spennandi en að lokum stóðu feðgarnir Elvar Ingi Hjartarson og Hjörtur Geirmundsson uppi sem sigurvegarar. Veitt voru verðlaun fyrir 5 efstu sætin og Kaupfélag Skagfirðinga gaf verðlaunin í þetta mót eins og mörg undangengin ár. Þá voru einnig veitt nándarverðlaun fyrir að vera næstur holu á 3/12. braut og þau hlaut Hákon Ingi Rafnsson. Verðlaun fyrir að vera næstu holu á 6/15.braut hlaut Arnar Geir Hjartarson.

5 efstu sætin voru eftirfarandi:

Keppendur Brúttó Nettó
1. Elvar Ingi Hjartarson og Hjörtur Geirmundsson 66 62
2. Þröstur Kárason og Hlynur Freyr Einarsson 68 62
3. Arnar Geir Hjartarson og Ingvi Þór Óskarsson 66 64
4. Þorbergur Ólafsson og Brynjar Örn Guðmundss. 70 65
5. Telma Ösp Einarsdóttir og Hákon Ingi Rafnsson 70 65