3. móti Norðurlandsmótaröð barna og unglinga var haldið á Ólafsfirði sunnudaginn 26.júlí s.l. Að venju sendi GSS keppendur á mótið og var árangur þeirra sem hér segir. Í byrjendaflokki sigraði Gísli Kristjánsson og stúlknaflokki varð Rebekka Helena B. Róbertsdóttir í 3.sæti og María Rut Gunnlaugsdóttir í 4.sæti. Í flokki 12 ára og yngri varð Bogi Sigurbjörnson í 5.sæti og Reynir Bjarkan B. Róbertsson í 6.sæti. Þá varð Anna Karen Hjartardóttir í 2.sæti í sama flokki. Í flokki 14 ára og yngri varð Hákon Ingi Rafnsson í 3.sæti og í sama flokki sigraði Marianna Ulriksen og Hildur Heba Einarsdóttir varð í 4.sæti. Í flokki 15-16 ára varð Telma Ösp Einarsdóttir í 2.sæti. í flokki 17-21 árs varð síðan Elvar Ingi Hjartarson í 4.sæti. Lokamótið verður síðan haldið á Akureyri laugardaginn 5.september. Búið er að uppfæra stöðuna í stigagjöfinni til Norðurlandsmeistara í öllum flokkum inni á heimasíðu mótaraðarinna nordurgolf.blog.is.
Meistaramóti barna og unglinga lokið
Meistaramót barna og unglinga GSS var haldið dagana 13. og 14. júlí s.l. Keppt var í 6 flokkum og voru keppendur samtals 12. Það gustaði svo sannarlega um keppendur þessa daga og fyrri daginn rigndi líka hressilega en þau létu það ekki á sig fá og stóðu sig með miklum ágætum. Það voru því 40 þáttakendur í báðum Meistaramótum GSS þetta árið.
Meðfylgjandi er mynd af hluta keppenda við verðlaunaafhendinguna.
Allar myndir frá verðlaunaafhendingunni má sjá á facebook síðunni Golfmyndir GSS
Úrslitin urðu þessi:
| 1 flokkur stelpur 2 x 18 holur – rauðir teigar | |
| 1. Marianna Ulriksen | 213 högg |
| 2. Telma Ösp Einarsdóttir | 227 högg |
| 3. Hildur Heba Einarsdóttir | 242 högg |
| 1 flokkur strákar 2 x 18 holur – gulir teigar | |
| 1. Hákon Ingi Rafnsson | 170 högg |
| 2 flokkur stelpur 2 x 18 holur – rauðir teigar | |
| 1. Anna Karen Hjartardóttir | 254 högg |
| 2 flokkur strákar 3 x 9 holur – rauðir teigar | |
| 1. Bogi Sigurbjörnsson | 200 högg |
| 2. Reynir Bjarkan B. Róbertsson | 225 högg |
| 3 flokkur stelpur 2 x 9 holur – gullteigar | |
| 1. Rebekka Helena B. Róbertsdóttir | 141 högg |
| 2. María Rut Gunnlaugsdóttir | 161 högg |
| 3 flokkur strákar 2 x 9 holur – gullteigar | |
| 1. Davíð Jónsson | 114 högg |
| 2. Brynjar Már Guðmundsson | 126 högg |
| 3. Gísli Kristjánsson | 138 högg |
Úrslit í Opna Hlíðarkaupsmótinu 18. júní.
Veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin auk nándarverðlauna á par þrjú holum.
Í efstu sætum voru:
1. Arnar Geir Hjartarson GSS – 39 punktar.
2. Hákon Ingi Rafnsson GSS – 38 punktar.
3. Bergur Rúnar Björnsson GÓ -38 punktar.
4. Gunnar Þór Gestsson GSS – 38 punktar.
5. Árný Lilja Árnadóttir GSS – 37 punktar.
Ásgeir Björgvin Einarsson var næstur holu á 3/12 braut, 16 cm og Hákon Ingi Rafnsson á 6/15 braut, 4,87 m. Nánari upplýsingar um úrslit er á www.golf.is

