Haraldur og Árný sigra á afmælismóti GSS
Afmælismót GSS var haldið í dag. Veðurguðirnir sýndu á sér ýmsar hliðar. Slagveðursrigning var í upphafi móts en veðrið lagaðist þó nokkuð þegar leið á daginn. Alls tóku 60 manns þátt í mótinu og skemmtu sér hið besta þrátt fyrir veðrið. Boðið var upp á kaffihlaðborð að loknu móti. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin án forgjafar í karla og kvennaflokki og forgjafarverðlaun fyrir fimm efstu sætin.
Úrslit í karlaflokki
Haraldur Friðriksson 81 högg
Jóhann Örn Bjarkason 81 högg (lakari síðari hringur)
Brynjar Bjarkason 85 högg.
Í kvennaflokki:
Árný Árnadóttir 84 högg
Sigríður Elín Þórðardóttir 92 högg
Sólborg Hermundardóttir 94 högg.
Flesta punkta fengu:
Haraldur Friðriksson GSS 35 punkta
Ásmundur Baldvinsson GSS 34 punkta
Adolf Hjörvar Berndsen GSK 34 punkta
Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 34 punkta
Magnús Barðdal GSS 33 punkta
Árný Lilja Árnadóttir GSS 33 punkta
Ásgeir Blöndal Steingrímsson GÓS 33 punkta