Punktar úr starfinu
Nokkrir punktar úr starfinu:
- Skálinn er að jafnaði opinn virka daga 10 – 18 og um helgar 10 – 16 (lengur ef það er mót).
- Mikil gróska er í barna- og unglingastarfi klúbbsins. Golfskólinn er mánudaga til fimmtudaga. 11 ára og yngri eru kl 10:30 – 12:00. 12 ára og eldri eru kl 13:30 – 15:30. Sumartím er kl. 8:30 – 10:00. Arnar Geir og Atli Freyr eru aðalþjálfarar og standa sig með miklum sóma. Helga Jónína (helgajg@simnet.is) er formaður unglinganefndar sem hefur í mörg horn að líta.
- Það er gaman að sjá hve góð þátttaka er í nýliðanámskeiðinu. Við fögnum nýju fólki og öðrum sem snúa aftur eftir pásu. Árný Lilja og Arnar Geir eru frábærir leiðbeinendur. Í framhaldi af nýliðanámskeiði verður lokahóf og fleira skemmtilegt s.s. vanur/óvanur og gullteigamót. Kynningar- og nýliðanefndin heldur utan um nýliðastarfið. Formaður er Dagbjört Rós (dagbjort79@live.com)
- Mótin eru farin að rúlla. Unglinganefndin hélt fyrsta föstudagsmót sumarsins þann 7. júní. Opna KS mótið var haldið 8. júní í sól og smá strekkingi. Sigurvegarar voru Arnar Geir og Ingvi Þór. Mót sumarsins má sjá á golf.is. Andri Þór (andri@byggdastofnun.is) er formaður mótanefndar.
- Vallarnefnd, vallarstjóri og dómarar klúbbsins hafa komist að niðurstöðu um merkingar vítasvæða. Vallarstarfsmenn eru búnir að merkja. Vítasvæði eru merkt með gulum eða rauðum hælum. Formaður vallarnefndar er Guðmundur Ágúst (gummiag@simnet.is )
- Dagana 9. – 16. júní verður GSS með léttan útdráttarleik fyrir félagsmenn: Dregið verður úr skráðum rástímum (á golf(.)is) og sá heppni fær glaðning. Til gamans gert en einnig til að hvetja fólk til að fara á völlinn og skrá rástíma. Skráning rástíma sýnir tillitssemi við aðra. Það ætti enginn að fara á völlinn nema með skráðan rástíma. Skráning er allra hagur. Vertu með í leiknum og kannski dettur þú í lukkupottinn.