Góð þátttaka hefur verið í golfmótum sumarsins hjá GSS og ágætur árangur náðst. Um 55 manns spiluðu í opna Steinullarmótinu mótinu sem fram fór 20. júlí og nokkrir í viðbót spiluðu daginn eftir í British open comes to Sauðárkrókur. Framundan eru mót næstu helgar. Hlíðarkaupsmótið verður næsta laugardag, þar sem ræst verður út í öllum hollum klukkan 10:00. Veðurspáin er fín og um að gera að skrá sig á www.golf.is
Category: Fréttir
Icelandair golfers á laugardaginn
Eitt af stórmótum sumarsins fer fram að Hlíðarenda á laugardaginn, Opna Icelandair golfers mótið. Hvetum við sem flesta til að skrá sig sem allra fyrst, enn eru lausir rástímar. Góð verðlaun eru í boði Icelandair Golfers, gjafabréf af ýmsu tagi. Skráning og nánari upplýsingar eru á www.golf.is
Meistaramót Golfklúbbs Sauðárkróks fór fram á Hlíðarendavelli 4.-7.júlí s.l.
Alls tóku 37 kylfingar þátt í meistaramóti GSS í mismunandi flokkum. Veðrið lék við kylfinga alla dagana og var keppni jöfn og

spennandi í flestum flokkunum. Klúbbmeistarar Golfklúbbs Sauðárkróks þetta árið eru þau Árný Lilja Árnadóttir og Arnar Geir Hjartarson. Árný var þarna að vinna sinn 11 meistaratitil í klúbbnum en Arnar Geir vann sinn fyrsta titil. Mótinu lauk á laugardagskvöldið með verðlaunaafhendingu. Þá voru einnig veitt ýmis aukaverðlaun. Fyrir næst holu á 3. braut á fyrsta keppnisdegi hlaut Thomas Olsen golfkennari verðlaun, á öðrum keppnisdegi varð Aldís Ósk Unnarsdóttir næst holu á 6.braut. Á þriðja keppnisdegi varð Ingvar Guðnason næstur holu á 9.braut eftir 2.högg. Síðustu aukaverðlaunin hlaut Sigríður Elín Þórðardóttir með flesta punkta án forgjafar á þremur bestu hringjum í mótinu.
Úrslit í öllum flokkum urðu þessi:
| Meistaraflokkur karla: | |
| 1. Arnar Geir Hjartarson | 321 högg |
| 2. Jóhann Örn Bjarkason | 327 högg |
| 3. Oddur Valsson | 329 högg |
| Meistaraflokkur kvenna: | |
| 1. Árný Lilja Árnadóttir | 339 högg |
| 2. Sigríður Elín Þórðardóttir | 346 högg |
| 3. Sigríður Eygló Unnarsdóttir | 362 högg |
| 1.flokkur karla: | |
| 1. Elvar Ingi Hjartarson | 336 högg |
| 2. Hlynur Freyr Einarsson | 357 högg |
| 3. Rafn Ingi Rafnsson | 362 högg |
| 3.flokkur karla: | |
| 1. Sævar Steingrímsson | 388 högg |
| 2. Unnar Rafn Ingvarsson | 391 högg |
| 3. Bjarni Jónasson | 392 högg |
| Öldungaflokkur karla: | |
| 1. Haraldur Friðriksson | 263 högg |
| 2. Einar Einarsson | 265 högg |
| 3. Ásgeir Björgvin Einarsson | 266 högg |
