Það voru ungu kylfingarnir sem voru bestir á fjórða Ólafshúsmótinu, sem fór fram í gær. Arnar Geir Hjartarson sigraði í punktakeppni án forgjafar og spilaði á 79 höggum. En Atli Freyr sigraði með forgjöf, en hann fékk 38 punkta. Báðir lækka þeir í forgjöf fyrir árangurinn.
Category: Fréttir

Í golfskála GSS er minningarbók vegna andláts fyrsta heiðursfélaga Golfklúbbs Sauðárkróks. Hvetum við alla að koma við í skála og skrifa nafn sitt í bókina. Hugmyndin er að einnig verði í bókinni sögur af viðureignum Friðriks við golfkúluna og bókin geymi þar með upplýsingar um þennan frumkvöðul golfíþróttarinnar á Sauðárkróki.
Stór helgi framundan hjá GSS

Næstu helgi verður Kvennamót GSS haldið á laugardegi og unglingamótið Nýprent open á sunnudegi, það verður því mikið um að vera á Hlíðarendavelli þessa helgi og vonandi að veðrið verði okkur hliðholt, en geta má þess að örfáir rástímar eru lausir í kvennamótinu og hver kona því að verða síðust að skrá sig. Hvetjum við börn og unglinga að skrá sig á Nýprent open, sem er flaggskip unglingastarfsins. Full ástæða er fyrir aðra en kylfinga að líta við í kaffi að Hlíðarenda og fylgjast með því starfi sem þar fer fram.
