Jóhann Örn Bjarkason tilnefndur sem íþróttamaður Skagafjaðrar
![ALdís og Hlynur](http://www.gss.is/wp-content/uploads/2011/12/ALdís-og-Hlynur2-300x288.jpg)
Við athöfn í gærkvöldi var tilkynnt hver hlyti titilinn íþróttamaður Skagafjarðar 2011. Meðal þeirra sem tilnefndir voru var Jóhann Örn Bjarkason kylfingur. Hann átti gott golfár og hefur aldrei verið betri. Íþróttamaður ársins í Skagafirði var valinn Elvar Einarsson hestamaður á Syðra-Skörðugili og er hann vel að titlinum kominn.
Á samkomunni fengu einnig ungir og efnilegir íþróttamenn viðurkenningu og voru þau Hlynur Einarsson og Aldís Ósk Unnarsdóttir tilnefnd af hálfu Golfklúbbsins.